Ásmundur búinn að suða og suða um hitting lengi. Ég náði loks að finna 30 mín gat fyrir hann. Sá tími dugði í tvo skáksigra hjá HB. Hann vildi ekki hleypa okkur út sigurlaus. “Ási, ég er að reka kosningabaráttu, ekki skákmót” sagði ég. Hann skildi.
Pavel hefur einn síns liðs unnið þrekvirki. Engin drónaskot eða pródúseraðar ræður reyndar ,en við vinnum með það næst.
Hlakka til að fara nokkrar ferðir með honum á kjörstað á morgun, hlakka til að sjá ykkur!
Á meðan aðrir veikari kosningastjórar tala um varnarsigra og þakklæti tek ég ábyrgð. Hlynur komst ekki inn. Því mun ég afhenda honum elsta son minn við athöfn kl 14 á Garðatorgi. Næst frem ég harakiri og viðstaddir eru hvattir til þess að hrækja á lík mitt.
“Guð blessi þá fyrir að halda þessu áfram”
“Ef það er vilji Guðs…”
“Íþróttaguðirnir leyfðu þessu að gerast”
“Ég vissi að Guð sæi um mig”
Að koma titlinum í Skagafjörð er kannski ekki hans stærsta afrek en alltaf gaman þegar Stóri G minnir á sig.